Fara í innihald

Alþingiskosningar 2024

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Alþingiskosningar 2024
Ísland
← 2021 30. nóvember 2024 Í síðasta lagi 2028 →

63 sæti á Alþingi
32 sæti þarf fyrir meirihluta
Kjörsókn:
Flokkur Formaður Núv. sæti
Sjálfstæðisflokkurinn Bjarni Benediktsson 17
Framsóknarflokkurinn Sigurður Ingi Jóhannsson 13
Vinstri græn Svandís Svavarsdóttir 8
Samfylkingin Kristrún Frostadóttir 6
Flokkur fólksins Inga Sæland 6
Píratar Formannslaust framboð 6
Viðreisn Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir 5
Miðflokkurinn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson 2
Fráfarandi ríkisstjórn
Bjarni Benediktsson II
 B   D 

Alþingiskosningar munu fara fram þann 30. nóvember 2024 eftir að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra boðaði þingrof og baðst lausnar fyrir ráðuneyti sitt þann 13. október 2024. Kosningar hefðu annars farið fram í síðasta lagi 27. september 2025.[1] Fráfarandi ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar samanstóð af Sjálfstæðisflokknum, Vinstri grænum og Framsóknarflokknum. Hún tók við af ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur á miðju kjörtímabili.[2] Samstarf þessara flokka í ríkisstjórn hófst fyrst eftir alþingiskosingarnar 2017 og varði í rúm sjö ár, lengur en nokkurt þriggja flokka stjórnarsamstarf fram að þessu.[3]

Erfiðleikar í samstarfi flokkanna urðu æ meira áberandi eftir því sem leið á seinna kjörtímabil samstarfsins, sérstaklega í málefnum útlendinga og orkumálum. Sérstaklega reyndi svo á stjórnarsamstarfið í máli sem varðaði brottvísun palestínskrar fjölskyldu í september 2024 þar sem ráðherrar Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna voru ósammála um réttmæti afskipta ráðherra í málinu.[4] Á landsfundi Vinstri grænna í október 2024 var samþykkt ályktun um að slíta ætti samstarfinu og stefna að kosningum um vorið 2025.[5] Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins lýsti hins vegar yfir endalokum stjórnarsamtarfsins á blaðamannafundi 13. október og gekk á fund forseta Íslands þann 14. október til að leita samþykkis forseta á þingrofi og baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt daginn eftir.[6][7] Halla Tómasdóttir, forseti Íslands lagði til að fráfarandi ríkisstjórn myndi skipa starfstjórn og starfa því áfram þar til ný stjórn er mynduð eftir kosningar, en Vinstri grænir neituðu að taka þátt í slíkri starfstjórn og hættu því þáttöku í ríkisstjórninni þann 17. október.[8]

Í kosningunum verður kosið um 63 þingsæti á Alþingi og notast er við hlutfallskosningu í sex kjördæmum. 54 þingsætum er úthlutað í kjördæmunum samkvæmt niðurstöðum í þeim en 9 þingsæti eru jöfnunarsæti sem úthlutað er samkvæmt niðurstöðum á landsvísu. Stjórnmálasamtök þurfa að ná 5% fylgi á landsvísu til að fá úthlutað jöfnunarsætum.[9] Fjöldi þingsæta á Alþingi og kjördæmaskipan er óbreytt frá síðustu kosningum en eitt þingsæti mun nú flytjast frá Norðvesturkjördæmi til Suðvesturkjördæmis vegna reglu um að kjósendur á kjörskrá að baki hverju þingsæti megi ekki ekki vera meira en tvöfalt fleiri í einu kjördæmi en einhverju hinna.[10]

Samkvæmt kosningalögum eiga alþingiskosningar að fara fram í síðasta lagi þegar að fjögurra ára kjörtímabili lýkur en lok kjörtímabils miðast við sama vikudag í mánuði, talið frá mánaðarmótum. Þar sem alþingiskosningarnar 2021 fóru fram á fjórða laugardegi septembermánaðar þurftu þessar kosningar að fara fram í síðasta lagi þann 27. september 2025, en í kjölfar stjórnarslita 13. október 2024 var þeim flýtt til 30. nóvember 2024 skv. tillögu forsætisráðherra en áður hafði landsfundur Vinstri grænna ályktað um að kjósa skyldi um vorið 2025. Óvenjulegt er að alþingiskosningar fari fram svo seint á árinu, þær hafa aðeins einu sinni farið fram síðar en það var 2.-3. desember 1979.[11] Framboðsfrestur er til kl. 12 á hádegi fimmtudaginn 31. október en atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst 7. nóvember.[12]

Tólf stjórnmálasamtök hafa boðað framboð; átta flokkar sem að eiga nú þegar sæti á Alþingi ásamt Sósíalistaflokki Íslands, Lýðræðisflokknum[13], Ábyrgri framtíð[14] og Græningjum.[15] Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn er með skráðan listabókstaf en hefur ekki boðað framboð nú.[16]

Þrjú formannaskipti áttu sér stað hjá flokkunum á kjörtímabilinu. Kristrún Frostadóttir tók við af Loga Einarssyni sem formaður Samfylkingarinnar í október 2022 og Guðmundur Ingi Guðbrandsson tók við sem formaður Vinstri grænna af Katrínu Jakobsdóttur í apríl 2024 í kjölfar afsagnar hennar þar sem hún bauð sig fram til embættis forseta Íslands í forsetakosningum sama ár. Guðmundur Ingi gaf ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku í flokknum og var Svandís Svavarsdóttir kjörin formaður Vinstri grænna á landsfundi flokksins í byrjun október. Í ágúst 2024 sagðist Bjarni Benediktsson íhuga að hætta sem formaður Sjálfstæðisflokksins fyrir kosningarnar, en í október 2024 tilkynnti hann að hann myndi verða formaður flokksins í kosningunum eftir að stjórninni var slitið.[17][18]

Yfirlit framboða

[breyta | breyta frumkóða]
Merki Flokkur Formenn Lista-

bókstafur

Núverandi
sæti
Sjálfstæðisflokkurinn Bjarni Benediktsson D 17
Framsóknarflokkurinn Sigurður Ingi Jóhannsson B 13
Vinstrihreyfingin - grænt framboð Svandís Svavarsdóttir V 8
Samfylkingin Kristrún Frostadóttir S 6
Flokkur fólksins Inga Sæland F 6
Píratar Formannslaust framboð P 6
Viðreisn Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir C 5
Miðflokkurinn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson M 2
Sósíalistaflokkur Íslands Gunnar Smári Egilsson J 0
Ábyrg framtíð Jóhannes Loftsson Y 0
Lýðræðisflokkurinn Arnar Þór Jónsson L 0
Græningjar Kikka Sigurðardóttir 0

(B) Framsóknarflokkurinn

[breyta | breyta frumkóða]

Framsóknarflokkurinn mun verða leiddur af Sigurði Inga Jóhannssyni í kosningunum, rétt eins og í þremur síðustu kosningum. Framsóknarflokkurinn hefur verið þátttakandi í ríkisstjórn frá árinu 2017. Framsóknarflokkurinn hefur misst mikið fylgi í skoðanakönnunum fyrir kosningarnar.[19][20]

(C) Viðreisn

[breyta | breyta frumkóða]

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur gefið það út að hún vilji leiða lista Viðreisnar aftur í kosningununum.[21] Viðreisn hefur verið í stjórnarandstöðu frá árinu 2017 og hefur fylgi flokksins verið mjög svipað niðurstöðu kosninganna 2021. Í september 2024 gaf listamaðurinn, fyrrum borgarstjórinn og forsetaframbjóðandinn Jón Gnarr það út að hann hafði gengið til liðs við flokkinn og ætlaði að sækjast eftir lista hjá flokknum í kosningunum.[22] Einnig gaf Pawel Bartoszek það út að hann sæktist eftir sæti á lista flokksins.[23]

(D) Sjálfstæðisflokkurinn

[breyta | breyta frumkóða]

Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið í ríkisstjórn í fimm kjörtímabil eða frá árinu 2013. Bjarni Benediktsson, formaður flokksins varð forsætisráðherra á miðju kjörtímabili í apríl 2024. Sjálfstæðisflokkurinn hefur misst mikið fylgi á kjörtímabilinu og hefur flokkurinn nánast aldrei mælst lægri. Bjarni greindi frá því í ágúst 2024 að hann væri í hugleiðingum um að hætta sem formaður fyrir landsfund flokksins sem að átti að fara fram í febrúar 2025.[17] Vegna óánægju flokksmanna með stjórn flokksins þá greindi Ásgeir Bolli Kristinsson frá því að svokallaður DD-listi, klofningslisti af Sjálfstæðisflokknum gæti boðið fram í kosningunum í september 2024.[24] Í október 2024 sleit Sjálfstæðisflokkurinn ríkisstjórninni og tilkynnti Bjarni að hann myndi verða formaður flokksins í kosningunum.[25]

(F) Flokkur fólksins

[breyta | breyta frumkóða]

Flokkur fólksins hefur setið í stjórnarandstöðu frá árinu 2017 og er útlit fyrir að Inga Sæland muni leiða flokkinn áfram. Fylgi flokksins hefur verið svipað fylginu sem að flokkurinn fékk í síðustu alþingiskosningunum.[19] Allir þingmenn flokksins sóttust um að halda áfram.[23] En svo fór að Tómas A. Tómasson, þigmaður flokksins í Reykjavík norður var neitað um að vera á lista og kemur Ragnar Þór Ingólfsson til með að leiða listann.[26]

(J) Sósíalistaflokkur Íslands

[breyta | breyta frumkóða]

Sósíalistaflokkur Íslands mun bjóða fram í annað sinn. Þrátt fyrir gott gengi í skoðanakönnunum náði flokkurinn ekki að koma manni inn í alþingiskosningunum 2021. Flokkurinn hefur mælst ýmist á eða utan þings á kjörtímabilinu, en þó mun oftar utan þings. Í september 2024 greindi Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti flokksins í borgarstjórn Reykjavíkur að hún myndi gefa kost á sér á lista flokksins í kosningunum.[27] Gunnar Smári Egilsson er enn formaður framkvæmdarstjórnar flokksins og mun því líklega leiða flokkinn aftur í kosningunum, þrátt fyrir að útlit sé fyrir að Sanna muni leiða flokkinn í kosningunum.

(L) Lýðræðisflokkurinn

[breyta | breyta frumkóða]

Arnar Þór Jónsson, hæstarréttarlögmaður og forsetaframbjóðandi í forsetakosningunum 2024 tilkynnti í júlí 2024 að hann væri að íhuga að stofna nýjan stjórnmálaflokk til að bjóða fram til alþingis í öllum kjördæmum.[28] Í september 2024 fóru hinsvegar fram viðræður á milli Arnars Þórs og Miðflokksins sem að gengu út á að Arnar Þór myndi gangast til liðs við Miðflokkinn í stað þess að stofna nýjan flokk. Viðræðurnar gengu ekki upp og stofnaði Arnar Þór, Lýðræðisflokkinn - samtök um sjálfsákvörðunarrétt í sama mánuði.[29][30]

(M) Miðflokkurinn

[breyta | breyta frumkóða]

Miðflokkurinn fékk kjörna þrjá þingmenn í kosningunum 2021, en eftir að Birgir Þórarinsson yfirgaf flokkinn þá var Miðflokkurinn einungis með tvo þingmenn.[31] Sigmundur Davíð Gunnlaugsson mun leiða flokkinn í þriðja sinn og hefur flokkinn verið í stjórnarandstöðu síðan 2017. Miðflokkurinn byrjaði með mjög lítið fylgi í skoðanakönnunum fyrripart kjörtímabilsins en þegar líða fór á kjörtímabilið þá varð gífurleg fylgisaukning í flokknum og núna er Miðflokkurinn næst stærsti flokkurinn í könnunum.[19] Í september 2024 gekk sundkappinn Anton Sveinn McKee til liðs við flokkinn.[32] Fjölmiðlamaðurinn Snorri Másson sóttist um að leiða lista flokksins, ásamt Sigríði Andersen sem að var þingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá 2015 til 2021 og dómsmálaráðherra frá 2017 til 2019.[23][33]

(P) Píratar

[breyta | breyta frumkóða]

Píratar munu bjóða fram í fimmta sinn í alþingiskosningunum. Píratar hafa setið í stjórnarandstöðu frá árinu 2013. Landsþing Pírata í september 2024 vakti usla vegna skipun í stjórn flokksins.[34] Fylgi Pírata mældist svipað og í síðustu alþingiskosningunum flest allt kjörtímabilið, en rétt fyrir kosningarnar var það byrjað að mælast mun lægra og í kringum fimm prósenta þröskuldinn. Þingmaður flokksins, Arndís Anna K. Gunnarsdóttir greindi frá því í september 2024 að umræða væri innan flokksins um tilkomu embættis formanns.[21] Borgarfulltrúarnir Dóra Björt Guðjónsdóttir og Alexandra Briem sóttust um sæti á lista ásamt fyrrum forsetaframbjóðandanum Viktori Traustasyni.[23]

(S) Samfylkingin

[breyta | breyta frumkóða]

Samfylkingin hefur verið í stjórnarandstöðu síðan árið 2013. Logi Einarsson sem að var formaður flokksins frá 2016 til 2022 hætti sem formaður í október 2022 og var Kristrún Frostadóttir kjörin í embættið.[35] Um haustið 2022 byrjaði Samfylkingin að mælast hærra og hærra og í byrjun árs 2023 var Samfylkingin orðin stærsti flokkurinn í skoðanakönnunum og er það enn.[19] Samkvæmt könnunum hefur Kristrún hefur verið sá stjórnmálamaður sem flestir treysta[36] og í efsta sæti þeirra sem kjósendur vilja sem næsta forsætisráðherra.[37] Fjölmargir sóttu um sæti hjá flokknum, þar á meðal Alma Möller, Víðir Reynisson og Nicole Leigh Mosty.[23]

(V) Vinstri hreyfingin – grænt framboð

[breyta | breyta frumkóða]

Vinstri grænir sátu í ríkisstjórn frá nóvember 2017 til októbers 2024 og voru frá nóvember 2017 til apríl 2024 með forsætisráðherraembættið þegar að formaður flokksins, Katrín Jakobsdóttir var forsætisráðherra. Í apríl 2024 sagði Katrín af sér sem forsætisráðherra, þingmaður og formaður flokksins og fór í framboð í forsetakosningunum 2024.[38] Í kjölfarið gerðist Guðmundur Ingi Guðbrandsson, varaformaður flokksins frá 2019 að formanni flokksins. Í september 2024 tilkynnti Guðmundur Ingi að hann myndi ekki gefa kost á sér sem formaður á landsfundi flokksins sem að fer fram í byrjun októbers.[39] Í kjölfarið lýsti Svandís Svavarsdóttir yfir formannsframboði og var hún sjálfkjörin formaður flokksins í október.[40] Vinstri grænir hafa misst mikið fylgi á kjörtímabilinu.[41][42] Á tíma Katrínar sem formanns mældist flokkurinn með lítið fylgi, en þó alltaf á þingi.[43] Þegar að Guðmundur Ingi tók við sem formaður missti flokkurinn ennþá meira fylgi og mældist nánast alltaf utan þings.[43] Tveimur dögum eftir að stjórninni var slitið af Sjálfstæðisflokki í október 2024 tilkynntu þrír ráðherrar Vinstri grænna að þeir myndu hætta þáttöku í starfstjórn ríkisstjórnarinnar fram að kosningunum[44] og tóku þau því ekki þátt áframhaldandi samstarfi flokkanna og hættu þau því í ríkisstjórninni 17. október.[45]

(Y) Ábyrg framtíð

[breyta | breyta frumkóða]

Ábyrg framtíð sem að er leidd af Jóhannesi Loftssyni stefnir á framboð í öllum kjördæmum.[46] Flokkurinn var stofnaður árið 2021 og bauð fram í alþingiskosningunum 2021, einungis í Reykjavík norður og hlaut flokkurinn 0,1% í kosningunum.[47] Flokkurinn bauð einnig fram í Reykjavík í sveitarstjórnarkosningunum 2022 og hlaut 0,8% atkvæða.[48] Helsta stefnumál flokksins í þessum kosningum er að takast á við uppgjörið eftir kórónaveirufaraldurinn á Íslandi 2019-2023.[46]

Græningjar

[breyta | breyta frumkóða]

Í október 2024 voru stjórnmálasamtök Græningja stofnuð af Kikku Sigurðardóttur. Þau stefna að því að bjóða fram í öllum kjördæmum.

Í töflunni hér að neðan má sjá efstu menn á öllum framboðslistum sem boðnir verða fram í kosningunum:

Flokkur RN RS SV NV NA S
(B) Framsóknarflokkurinn - - - - - Halla Hrund Logadóttir
(C) Viðreisn - - - - - -
(D) Sjálfstæðisflokkurinn - - Bjarni Benediktsson Ólafur Adolfsson Jens Garðar Helgason Guðrún Hafsteinsdóttir
(F) Flokkur fólksins Ragnar Þór Ingólfsson - - - - -
(J) Sósíalistaflokkur Íslands - Sanna Magdalena Mörtudóttir - - - -
(L) Lýðræðisflokkurinn - - - - - -
(M) Miðflokkurinn - - - - - -
(P) Píratar - - - - - -
(S) Samfylkingin - - Alma Möller - - Víðir Reynisson
(V) Vinstri hreyfingin – grænt framboð - - - - - -
(Y) Ábyrg framtíð - - - - - -

Skoðanakannanir

[breyta | breyta frumkóða]

Árið 2017 sögðust rúmlega 80% þjóðarinnar styðja ríkisstjórnina og árið 2018 sögðust 70% styðja hana. Samanborið við hana mældist ríkisstjórnin á undan henni, fyrsta ráðuneyti Bjarna Benediktssonar einungis með 31% um mitt ár 2017 og var því þesi ríkisstjórn vinsælasta ríkisstjórn frá upphafi mælinga.[49][50][51] Árið 2019 sögðust 52% styðja ríkisstjórnina og 61% árið 2020, en margir voru sáttir við aðgerðir ríkisstjórnarinnar við Kórónuveirufaraldrinum.[52] Svo fór að í alþingiskosningunum 2021 fékk ríkisstjórnin hreinan meirhluta eða samtals 54,3% atkvæða og mældist stuðningurinn 67% sama ár.[53] Árið 2022 mældist stuðningurinn 44% og 35% árið 2023. Árið 2024 mældist stuðningurinn 24%.[54]

Línurit sem sýnir niðurstöður skoðanakannana frá 2021.
Fyrirtæki Dags. framkvæmd Úrtak Svarhlutfall Flokkar
Stjórn Stjórnarandstaða Aðrir Forskot
D B V S F P C M J
Prósent 15,6 6,2 2,2

24,8

10,8 6,1 14,1 15,1 4,2 9,2
Maskína 13 okt–18 okt 2024 14,1 8 5,1

21,9

7,3 5,2 13,4 17,7 5,2 2,1 4,2
Prósent 18 sep–3 okt 2024 2.150 50,8 12 5 3 26 11 9 11 18 4 8
Gallup 30 ágú–30 sep 2024 11.138 48,3 14,1 6,2 4,3 26,2 7,5 7,6 10,3 18,7 5,2 7,5
Maskína 24 sep 2024 1.783 13,4 7,6 3,7 25,0 8,8 8,5 11,3 17,0 4,7 8,0
Gallup 1–29 ágú 2024 10.780 46,8 17,1 7,0 3,4 26,4 6,7 7,8 10,1 16,0 5,7 9,3
Maskína 7–27 ágú 2024 1.730 13,9 9,0 4,6 25,5 7,1 8,6 10,7 15,3 5,2 10,2
Gallup 1–30 júl 2024 9.306 45,9 17,2 7,2 3,5 27,6 8,6 7,8 8,8 14,6 4,7 10,4
Gallup 3–30 jún 2024 8.786 47,3 18,5 6,6 4,0 26,9 7,7 8,8 9,4 14,5 3,5 8,4
Maskína 31 maí–20 jún 2024 1.846 14,7 10,2 5,0 27,1 5,0 9,3 10,1 12,7 5,9 12,4
Gallup 30 apr–2 jún 2024 12.731 50,2 18,0 9,1 3,3 29,9 6,1 8,8 7,7 13,5 3,7 11,9
Maskína 30 apr–23 maí 2024 3.349 17,5 10,4 5,1 27,3 5,6 8,4 9,3 12,6 3,9 9,8
Háskóli Íslands 22–30 apr 2024 2.638 19,0 10,0 4,3 25,4 7,3 8,1 7,9 13,4 4,4 0,2 6,4
Gallup 3–28 apr 2024 9.925 48,1 18,0 8,8 4,4 29,7 7,2 8,2 7,5 12,8 3,4 11,7
Maskína 5–16 apr 2024 1.746 17,2 10,7 5,0 27,3 5,3 8,5 10,2 11,6 4,1 10,1
Gallup 1 mar–2 apr 2024 18,2 7,3 5,6 30,9 6,2 7,8 7,1 12,9 3,9 12,7
Maskína 6–12 mar 2024 1.753 18,0 9,4 6,7 25,6 5,7 9,5 9,7 11,9 3,5 7,6
Gallup 1–29 feb 2024 9.964 48,1 19,9 8,8 4,7 28,2 6,8 8,0 7,5 12,8 3,5 8,3
Maskína 7–27 feb 2024 1.706 18,4 8,5 5,9 27,2 6,4 9,0 9,2 11,1 4,3 8,8
Gallup 2–31 jan 2024 10.503 46,9 18,2 8,4 5,5 30,6 7,9 8,1 7,0 10,9 3,4 12,4
Maskína 10–15 jan 2024 1.936 16,6 10,3 5,7 25,7 6,5 7,6 11,7 11,8 4,1 9,1
Gallup 1 des 2023 – 1 jan 2024 9.636 48,9 18,1 9,4 6,0 28,4 6,8 9,1 8,8 9,7 3,6 10,3
Maskína 19–27 des 2023 1.945 17,3 9,9 5,6 26,3 6,8 8,1 12,2 9,4 4,3 9,0
Gallup 1–30 nóv 2023 9.721 47,8 19,8 8,6 5,1 28,1 6,9 9,3 7,9 9,4 4,2 8,3
Maskína 3–7 nóv & 23–26 nóv 2023 2.376 17,9 10,4 6,1 26,0 6,4 10,0 10,3 8,4 4,4 8,1
Gallup 2–31 okt 2023 10.463 49,8 20,5 7,4 6,0 29,1 6,5 10,2 7,5 8,6 4,1 8,6
Maskína 12–24 okt 2023 1.935 17,7 9,8 5,9 27,8 6,1 10,8 9,3 8,2 4,3 10,1
Gallup 1 sep–3 okt 2023 11.005 48,5 20,4 8,1 5,7 30,1 5,7 9,6 7,9 8,6 3,9 9,7
Maskína 15–29 sep 2023 1.466 19,6 8,8 6,5 24,4 6,5 10,8 11,6 7,0 4,8 4,8
Gallup 1–31 ágúust 2023 10.076 49,5 21,1 7,5 5,9 28,5 6,3 10,3 7,2 8,7 4,4 7,4
Maskína 17–22 ágúust 2023 954 17,6 9,2 6,4 26,1 5,9 13,1 9,5 7,9 4,2 8,5
Gallup 3–30 júly 2023 10.491 46,1 21,0 8,9 6,1 28,6 5,7 10,5 7,0 8,5 3,6 7,6
Maskína 6–24 júly 2023 836 19,3 9,6 8,0 25,3 6,0 11,0 10,4 5,9 4,5 6,0
Prósent 22 júne–22 júly 2023 2.300 51,8 16,1 7,1 7,3 27,4 8,5 14,5 8,9 7,2 2,9 11,3
Gallup 1 júne–2 júly 2023 11.331 48,8 20,8 8,7 6,2 28,4 5,7 9,7 8,1 7,8 4,6 7,6
Maskína 1–22 júne 2023 1.691 18,5 8,8 7,0 27,2 6,6 11,3 9,7 6,3 4,7 8,7
Gallup 2–31 maí 2023 10.316 48,2 20,8 10,2 5,7 28,4 5,5 10,1 7,6 6,9 4,9 7,6
Maskína 4–16 maí 2023 1.726 19,2 10,0 6,1 27,3 5,6 11,0 9,1 6,4 5,2 8,1
Gallup 3 apr–1 maí 2023 9.916 48,7 21,9 9,6 6,6 27,8 6,0 10,0 7,4 6,2 4,3 5,9
Maskína 13–19 apr 2023 852 18,7 10,2 8,2 25,7 4,4 11,4 10,6 6,0 4,9 7,0
Gallup 1 mar–2 apr 2023 1.128 22,3 9,9 7,1 25,1 5,6 9,4 9,1 6,3 5,1 2,8
Maskína 6–20 mar 2023 1.599 20,2 13,2 6,0 24,4 5,2 10,2 9,1 5,7 6,0 4,2
Gallup 1–28 feb 2023 9.517 49,6 22,5 10,8 6,8 24,0 5,6 12,1 7,7 5,3 5,0 1,5
Maskína 3–13 feb 2023 1.892 20,1 12,3 6,7 23,3 5,9 12,7 8,2 5,8 5,0 2,2
Prósent 27 jan–6 feb 2023 2.400 51,4 23,2 11,8 5,9 22,1 9,5 12,5 6,9 4,1 4,1 1,1
Maskína 13–18 jan 2023 804 21,8 12,1 8,3 23,6 5,1 10,4 9,1 5,9 3,6 1,8
Gallup 6–31 jan 2023 9.842 48,5 23,5 11,3 6,8 25,3 5,5 10,4 7,3 5,5 4,4 1,8
Gallup 1 des 2022–2 jan 2023 7.115 48,0 23,8 12,1 6,8 23,4 6,2 11,3 6,9 4,6 4,6 0,2
Prósent 22–30 des 2022 4.000 49,6 23,2 10,8 6,7 20,5 9,7 14,3 6,2 4,5 4,0 2,7
Maskína 16–28 des 2022 1.703 20,0 12,2 7,8 20,1 7,0 12,5 7,5 6,7 6,1 0,1
Gallup 1–30 nóv 2022 10.798 50,8 24,1 12,2 7,5 21,1 4,5 12,2 7,4 5,6 5,2 3,0
Maskína 4–22 nóv 2022 2.483 21,8 14,8 7,1 19,0 5,0 13,4 9,0 4,9 5,0 2,8
Prósent 14–17 nóv 2022 2.600 51,3 21,1 14,6 8,0 19,1 6,4 11,8 10,6 4,2 4,2 2,0
Gallup 3–31 okt 2022 8.267 49,9 24,4 13,8 8,4 16,6 5,3 12,9 8,4 5,0 5,0 7,8
Maskína 30 sep–17 okt 2022 1.638 22,8 15,0 7,7 14,4 4,6 14,3 9,5 5,0 6,5 7,8
Gallup 1 sep–2 okt 2022 11.149 48,3 24,1 13,4 8,2 16,3 5,1 13,6 8,5 5,4 5,1 7,8
Maskína 16–27 sep 2022 1.875 20,8 15,6 8,7 15,2 5,0 12,3 10,4 5,3 6,8 5,2
Gallup 2–31 ágú 2022 10.719 48,9 21,8 15,6 8,4 15,5 5,6 14,8 8,4 4,6 5,1 6,2
Maskína 12–17 ágú 2022 890 20,9 19,6 7,5 12,9 4,6 13,9 8,9 4,5 7,3 1,3
Gallup 1 júl–1 ágú 2022 9.705 49,0 22,1 15,4 8,6 13,7 6,6 15,0 8,6 4,4 5,3 6,7
Maskína 20–25 júl 2022 895 24,4 18,0 7,7 10,9 6,9 12,7 8,3 6,0 5,1 6,4
Gallup 2–30 jún 2022 10.274 61,7 22,8 17,5 7,2 13,7 7,0 16,1 6,7 4,6 4,1 5,3
Maskína 1–23 jún 2022 1.658 19,3 18,3 8,5 13,4 6,3 14,6 8,8 4,7 6,1 1,0
Prósent 2–13 jún 2022 1.780 50,1 18,5 17,3 9,0 13,5 5,6 17,5 7,8 4,2 6,3 2,2
Gallup 2–31 maí 2022 10.548 51,9 20,1 17,5 8,1 14,1 6,4 14,7 9,5 4,3 5,0 2,6
Prósent 13–26 apr 2022 3.500 50,3 17,9 12,4 9,6 16,8 8,0 16,2 9,6 4,1 5,4 1,1
Gallup 1–30 apr 2022 9.828 50,1 19,8 15,6 10,1 13,7 7,7 14,5 9,6 4,1 4,6 4,2
Maskína 17 mar–12 apr 2022 1.367 22,4 15,5 8,8 13,0 7,7 13,2 10,5 4,2 4,6 6,9
Gallup 1–31 mar 2022 10.941 49,6 22,7 18,0 11,4 11,2 8,2 11,9 9,1 3,7 3,6 4,7
Gallup 1–28 feb 2022 9.672 49,7 21,9 18,1 10,5 11,1 7,5 13,2 9,7 3,9 3,9 3,8
Maskína 28 jan–16 feb 2022 3.039 21,9 16,9 12,9 13,4 7,6 10,3 9,7 3,9 3,5 5,0
Gallup 1–31 jan 2022 10.911 50,4 22,4 17,0 10,7 10,8 8,8 12,5 9,4 3,7 4,3 5,4
Maskína 6–19 jan 2022 1.548 20,1 17,8 11,2 12,3 8,5 13,5 9,2 3,7 3,7 3,3
Gallup 1–30 des 2021 7.890 51,2 23,3 17,7 10,6 10,5 8,6 12,5 8,7 3,4 4,5 5,6
Gallup 1–30 nóv 2021 10.000 51,0 22,7 17,0 13,0 10,7 8,0 11,8 8,4 3,8 4,4 5,7
Gallup 1–31 okt 2021 8.899 50,6 22,8 17,2 13,4 9,8 7,9 11,0 8,9 4,3 4,6 5,6
MMR 12–18 okt 2021 967 21,1 17,9 12,1 10,1 7,8 11,7 10,0 3,2 5,5 3,2
Alþingiskosningar 2021 25 sep 2021 24,4 17,3 12,6 9,9 8,9 8,6 8,3 5,5 4,1 0,5 7,1


Fyrir:
Alþingiskosningar 2021
Alþingiskosningar Eftir:
Alþingiskosningar 2028

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Ragna Gestsdóttir (9. október 2024). „Ef við náum ekki tökum á þessum málum strax eftir næstu kosningar þá er ekkert víst að það verði aftur snúið“. Dagblaðið Vísir. Sótt 17. október 2024. „Núverandi kjörtímabilki lýkur haustið 2025, síðast var kosið til Alþingis 25. september 2021 og þyrftu næstu kosningar því að fara fram í síðasta lagi 27. september 2025.
  2. Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir (4. september 2024). „Bjarni Bene­dikts­son nýr for­sætis­ráð­herra“. Vísir.is. Sótt 17. október 2024.
  3. „3ja flokka stjórn ekki setið heilt kjörtímabil - RÚV.is“. RÚV. 29. nóvember 2017. Sótt 18. október 2024.
  4. „Enn­þá í tölu­verðu óvissuástandi um fram­vinduna“. visir.is. 13. október 2024. Sótt 18. október 2024.
  5. Sólrún Dögg Jósefsdóttir (10. júní 2024). „Sam­þykktu á­lyktun og stefna að kosningum í vor“. visir.is. Sótt 6. október 2024.
  6. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir; Ástrós Signýjardóttir; Freyr Gígja Gunnarsson (13. október 2024). „Sjálfstæðisflokkur slítur ríkisstjórnarsamstarfinu – Bjarni vill kosningar 30. nóvember“. RÚV. Sótt 13. október 2024.
  7. Kjartan Kjartansson; Jón Þór Stefánsson (15. október 2024). „Halla féllst á beiðni Bjarna og rúmar sex vikur til kosninga“. visir.is. Sótt 15. október 2024.
  8. Árni Sæberg (15. október 2024). „Taka ekki þátt í starfsstjórn - Vísir“. visir.is. Sótt 15. október 2024.
  9. „112/2021: Kosningalög“. Alþingi. Sótt 18. október 2024.
  10. Isabel Alejandra Diaz (18. október 2024). „Þingsætum fækkar í Norðvesturkjördæmi - RÚV.is“. RÚV. Sótt 18. október 2024.
  11. „Kjördagar 1908–2021: Almennar alþingiskosningar og landskjör“. Alþingi. Sótt 18. október 2024.
  12. „Kosningar til Alþingis“. Landskjörstjórn. 18. október 2024.
  13. Freyr Gígja Gunnarsson (16. október 2024). „Flokkarnir þurfa að finna þúsund manns með óflekkað mannorð sem ekki eru hæstaréttardómarar“. RÚV. Sótt 18. október 2024.
  14. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir (17. október 2024). „Ábyrg framtíð stefnir á framboð í öllum kjördæmum“. RÚV. Sótt 18. október 2024.
  15. „Græningjar vilja inn á þing“. RÚV. 20. október 2024.
  16. Sjá auglýsingu 225/2022 í B-deild stjórnatíðinda. Önnur stjórnmálasamtök en þar eru tilgreind þurfa að sækja um listabókstaf til dómsmálaráðuneytis, sbr. 2. mgr. 2.gr.k í lögum um starfsemi stjórnmálasamtaka nr. 162/2006.
  17. 17,0 17,1 Þorgerður Anna Gunnarsdóttir (31. ágúst 2024). „Bjarni íhugar stöðu sína fram að landsfundi - RÚV.is“. RÚV. Sótt 31. ágúst 2024.
  18. Ólafur Björn Sverrisson (13. október 2024). „Ríkis­stjórnin sprungin - Vísir“. visir.is. Sótt 13. október 2024.
  19. 19,0 19,1 19,2 19,3 „Next Icelandic parliamentary election“, Wikipedia (enska), 27. september 2024, sótt 28. september 2024
  20. Erla María Markúsdóttir (2. júlí 2024). „Óvinsælasta ríkisstjórn Íslands í 15 ár og minnsta fylgi Framsóknar frá upphafi“. Heimildin. Sótt 18. október 2024.
  21. 21,0 21,1 „Silfrið - 9. september 2024 á RÚV“.
  22. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir (26. september 2024). „Jón Gnarr til Viðreisnar“. RÚV. Sótt 28. september 2024.
  23. 23,0 23,1 23,2 23,3 23,4 Sæberg, Árni (17. október 2024). „Kosningavaktin: Ís­lendingar ganga að kjör­borðinu - Vísir“. visir.is. Sótt 19. október 2024.
  24. „Flokkurinn þurfi ekki „ný­út­skrifaðar stúlkur sem ætla bara að blása á sér hárið og nagla­lakka sig". visir.is. 9. apríl 2024. Sótt 4. september 2024.
  25. „Ríkisstjórnin sprungin“. Morgunblaðið. 13. október 2024. Sótt 17. október 2024.
  26. Sigurþórsdóttir, Sunna Karen; Guðmundsson, Brynjólfur Þór (21. október 2024). „Ragnar Þór á leið á þing fyrir Flokk fólksins - RÚV.is“. RÚV. Sótt 21. október 2024.
  27. „Sanna borgarfulltrúi vill á þing“. www.mbl.is. Sótt 28. september 2024.
  28. Rafn Ágúst Ragnarsson (24. júlí 2024). „Arnar Þór í­hugar að stofna stjórn­mála­flokk“. visir.is. Sótt 29. september 2024.
  29. Jón Ísak Ragnarsson (29. september 2024). „Arnar Þór stofnar Lýðræðisflokkinn“. visir.is. Sótt 29. september 2024.
  30. Ragnar Jón Hrólfsson (10. október 2024). „Lýðræðisflokkurinn kynnir stefnumál sín“. RÚV. Sótt 13. október 2024.
  31. „Yfirgefur Miðflokkinn tveimur vikum eftir að hafa verið kjörinn á þing fyrir hann“. Kjarninn. 9. október 2021. Sótt 18. október 2024.
  32. „Anton Sveinn til liðs við Miðflokkinn“. www.mbl.is. Sótt 28. september 2024.
  33. Ragnarsson, Rafn Ágúst (20. október 2024). „Sig­ríður Ander­sen leiðir lista Mið­flokksins - Vísir“. visir.is. Sótt 20. október 2024.
  34. „Kurr í röðum Pírata“. www.mbl.is. Sótt 28. september 2024.
  35. „Kristrún kjörin formaður og boðar nýjar áherslur - RÚV.is“. RÚV. 28. október 2022. Sótt 18. október 2024.
  36. „Flestir treysta Kristrúnu“. Kjarninn. 18. nóvember 2022. Sótt 18. október 2024.
  37. Alexander Kristjánsson (29. ágúst 2024). „Fjórðungur vill Kristrúnu í forsætisráðuneytið – 5% nefna Bjarna“. RÚV. Sótt 18. október 2024.
  38. „Katrín Jakobsdóttir býður sig fram til forseta“. RÚV. 5. apríl 2024. Sótt 18. október 2024.
  39. Ásrún Brynja Ingvarsdóttir (23. september 2024). „Guðmundur Ingi vill verða aftur varaformaður“. RÚV. Sótt 18. október 2024.
  40. Ragnhildur Þrastardóttir (5. október 2024). „Svandís nýr formaður VG en þurfti ekki að leggjast í formannsslag“. Heimildin. Sótt 18. október 2024.
  41. Kristín Sigurðardóttir (3. júlí 2022). „Viðbúið að VG haldi áfram að tapa fylgi“. RÚV. Sótt 18. október 2024.
  42. Magnús Jochum Pálsson (3. janúar 2024). „Vinstri græn næðu ekki inn á þing“. visir.is. Sótt 18. október 2024.
  43. 43,0 43,1 „2024 Icelandic parliamentary election“, Wikipedia (enska), 18. október 2024, sótt 19. október 2024
  44. Alma Ómarsdóttir; Birgir Þór Harðarson; Valur Grettisson; Ólöf Rún Erlendsdóttir; Ragnar Jón Hrólfsson; Oddur Þórðarson (15. október 2024). „Tveggja flokka starfsstjórn til kosninga - ráðherrar VG ekki með“. RÚV. Sótt 18. október 2024.
  45. Heimir Már Pétursson (17. október 2024). „Starfsstjórn með minni­hluta á Al­þingi tekur við síð­degis“. visir.is. Sótt 18. október 2024.
  46. 46,0 46,1 Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir (17. október 2024). „Ábyrg framtíð stefnir á framboð í öllum kjördæmum“. RÚV. Sótt 17. október 2024.
  47. „Alþingiskosningar 2021“. Alþingi. Sótt 17. október 2024.
  48. „Sjáið það sem bar hæst á kosninganótt“. Kjarninn. 14. maí 2022. Sótt 17. október 2024.
  49. „Stuðningur við ríkisstjórnina lækkar bara og lækkar“. Kjarninn. 27. júní 2017. Sótt 5. október 2024.
  50. Ingvar Þór Björnsson (30. desember 2017). „Þrír af hverjum fjórum styðja ríkisstjórnina“. visir.is. Sótt 5. október 2024.
  51. „Rúm 70% styðja ríkisstjórnina“. www.mbl.is. Sótt 5. október 2024.
  52. „61% segjast styðja ríkisstjórnina - RÚV.is“. RÚV. 5. maí 2020. Sótt 5. október 2024.
  53. „Stuðningur við ríkisstjórnina ekki mælst meiri í 3 ár - RÚV.is“. RÚV. 15. nóvember 2021. Sótt 5. október 2024.
  54. „Sögulega lítill stuðningur við ríkisstjórn“. www.mbl.is. Sótt 5. október 2024.