IS / EN
VÖRUMERKI

Vörumerkin sem brafa stendur fyrir

Lásar, hljóð, skjáir, net, lýsing, rofar og hljóðvist, valin af kostgæfni, sett upp og þjónustuð af okkur.

Úrval okkar

Merki sem við þekkjum út og inn

Við seljum búnað sem við treystum okkur til að setja upp, stilla og þjónusta. Hér eru vörumerkin sem við vinnum með, styrkleikar þeirra og dæmi um hvernig við notum vörurnar.

Okkar eigin

brafa
brafa ehf. · snjalllásar og hugbúnaður

Snjalllásar fyrir hurðir með ASSA- eða EURO-sílender, 35–95 mm á þykkt, sem opnast með fingrafari, kóða, aðgangskorti, appi eða lykli, eftir gerð. brafa Hotel er fyrir herbergishurðir og brafa Keypad fyrir rafdrifnar hurðir og hlið.

Hjá brafa: Okkar eigin lás. Við eigum varahluti og svörum þér beint. Yfir 5.000 í daglegri notkun á Íslandi.

Finna rétta lásinn

Hljóðvist

Impact Acoustic
Sviss · hljóðvistarlausnir

Hljóðvistarlausnir: vegg- og loftplötur, skilrúm og ljós í fjölbreyttum litum, með ólíkri áferð og í margvíslegum formum. ARCHISONIC Felt er úr PET, að minnsta kosti 60% úr endurunnum flöskum, og Natura Cotton er plastlaust efni úr bómullartrefjum og steinefnum.

Hjá brafa: brafa er samstarfsaðili Impact Acoustic á Íslandi: við mælum rýmið, hönnum lausnina og setjum upp.

Skoða hljóðvist

Hljóð

Sonos
Bandaríkin · þráðlaus hljóðkerfi fyrir mörg herbergi

Sonos framleiðir þráðlaus hljóðkerfi fyrir heimili. Hátalarar, hljóðstangir og magnarar tengjast í gegnum Wi-Fi og spila í einu herbergi eða um allt hús. Öllu er stýrt úr einu appi.

Hjá brafa: Við seljum, setjum upp og stillum Sonos fyrir hvert rými, frá einum hátalara upp í heilt hús. Í Hljóðvali setur þú saman kerfi fyrir sjónvarpið og herbergin.

Skoða hljóð í verslun
Ascendo
Þýskaland · hágæðahátalarar og heimabíó

Ascendo Immersive Audio smíðar hátalara og bassabox í hæsta gæðaflokki, bæði fyrir tónlistarhlustun og heimabíó þar sem hljóðið umlykur áhorfandann.

Hjá brafa: Fyrir hljóðrými og heimabíó. Við hönnum kerfið með þér og setjum það upp.

Fá ráðgjöf
Leon
Bandaríkin · sérsmíðaðir hátalarar

Leon Speakers handsmíðar hátalara og hljóðstangir eftir máli. Hljóðstöngin er smíðuð í nákvæmri breidd sjónvarpsins og hátalararnir eru felldir að innréttingunni.

Hjá brafa: Þegar hljóðið á að heyrast en ekki sjást. Við mælum, pöntum eftir máli og setjum upp.

Fá ráðgjöf

Skjáir

Philips Professional Displays
Holland · atvinnuskjáir

Atvinnuskjáir frá Philips: hótelsjónvörp í Hospitality-línunni, meðal annars MediaSuite með innbyggðu Android TV og Chromecast, og upplýsingaskjáir í Signage-línunni.

Hjá brafa: MediaSuite sjónvörpin keyra hótelsjónvarpskerfi brafa. Sjónvarpið heilsar gestinum með nafni og býður aðgang að þjónustu hótelsins á skjánum.

Skoða hótelsjónvarp
LG
Suður-Kórea · atvinnuskjáir

Atvinnuskjáir frá LG: hótelsjónvörp í Hospitality-línunni og upplýsingaskjáir í Signage-línunni, fyrir móttökur, verslanir, fundarherbergi og anddyri.

Hjá brafa: Við veljum rétta skjáinn, setjum hann upp og tengjum við móttökukerfið, efnisveituna þína eða hótelsjónvarp brafa með Google TV Streamer.

Skoða hótelsjónvarp

Net

Ubiquiti / UniFi
Bandaríkin · net, myndavélar og aðgangur

UniFi er heildstætt netkerfi frá Ubiquiti: Wi-Fi, beinar og netskiptar, Protect öryggismyndavélar og Access aðgangsstýring, allt í einu stjórnborði.

Hjá brafa: Við hönnum netið, leggjum það og stillum, svo Wi-Fi nái í hvert horn og myndavélarnar séu alltaf aðgengilegar. Í Netvali setur þú saman UniFi net fyrir heimili, sumarhús eða fyrirtæki.

Skoða net í verslun
Teltonika
TeltonikaLitháen · 4G og 5G beinar og netskiptar

Teltonika framleiðir beina sem tengjast netinu um farsímakerfið, 4G eða 5G, og netskipta.

Hjá brafa: Þar sem ekki er hægt að leggja fastlínu tengja Teltonika 4G beinar húsið, og þá virka lásarnir og vöktunin líka úr fjarlægð.

Skoða Teltonika í verslun

Stýringar og rofar

Loxone
Austurríki · snjallheimili og hússtjórnarkerfi

Loxone tengir lýsingu, hita, gluggatjöld, hljóð og aðgang í eitt kerfi sem vinnur sjálfkrafa, í stað margra aðskildra appa.

Hjá brafa: Við hönnum, setjum upp og forritum Loxone kerfi fyrir heimili, sumarhús og fyrirtæki.

Setja saman Loxone kerfi
Efapel
EfapelPortúgal · rofar og tenglar

Rofar og tenglar í línunum Logus 90, Apolo 5000, Sirius 70, Quadra, Siza og Latina. Rammarnir fást í fjölda lita og áferða, meðal annars með gler-, viðar-, málm- og steináferð. Waterproof 48 línan er IP65 og ætluð til notkunar utandyra.

Hjá brafa: Í Rofavali velur þú línu og áferð, telur rofa og tengla herbergi fyrir herbergi og biður um tilboð.

Opna Rofaval

Lýsing

Ideal Lux
Ítalía · hönnunarljós

Ítölsk ljós með nútímalegri hönnun á viðráðanlegu verði, loftljós, veggljós, kastarar og útiljós í miklu úrvali.

Hjá brafa: Úrvalið er meira en hér birtist. Við pöntum eftir vörulista. Afhendingartími er allt að 2 vikur.

Skoða lýsingu í verslun
Molto Luce
Austurríki · arkitektúrlýsing

Vönduð lýsing fyrir heimili og atvinnuhúsnæði, hótel, veitingastaði, verslanir og skrifstofur.

Hjá brafa: Við aðstoðum við val og útfærslu og pöntum eftir vörulista. Afhendingartími er allt að 2 vikur.

Fá ráðgjöf

Áhugi á einhverju vörumerki?

Hafðu samband ef þú vilt spyrjast fyrir, fá vörulista eða leggja inn pöntun. Úrvalið er meira en hér birtist.