Persónuleikaröskun
Útlit
Persónuleikaröskun er tegund geðraskana og geðsjúkdóma. Þær eru einkenni í atferli einstaklings sem koma niður á öðrum. Maður með slíka röskun nær illa að laga sig að siðum samfélagsins en er þó í eðlilegum veruleikatengslum og hefur rökræna hugsun.[1] Matsatriði er hvar mörk eru á persónuleikaröskun og venjulegu fólki. Líklega er röskunin öfgakennd einkenni hjá fólki. Þær eru gagnlegar til að skilgreina hegðunarmynstur en ekki muninn á heilbrigði einstaklinga.[2]
Persónuleikaraskanir á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]Tíðni persónuleikaraskana á Stór-Reykjavíkursvæðinu er 11%, samkvæmt rannsókn á 805 manna úrtaki árið 2009.[3]
Dæmi um presónuleikaraskanir
[breyta | breyta frumkóða]- Jaðarpersónuleikaröskun (e. borderline personality disorder)
- Aðsóknarpersónuleikaröskun (e. paranoid personality disorder)
- Andfélagsleg persónuleikröskun (e. antisocial personality disorder)
- Sjálfsdýrkandi persónuleikaröskun (e. narcissistic personality disorder)
- Árátta og þráhyggja (e. obsessive and compulsive personality disorder)
- Hliðrunarpersónuleikaröskun (e. avoidant personality disorder)
- Kleyfhuga persónuleikaröskun (e. schizoid personality disorder)
- Geðhrifa persónuleikaröskun (e. histrionic personality disorder)
- Hæðis persónuleikaröskun (e. dependent personality disorder)
- Geðklofalík persónuleikaröskun (e. schizotypal personality disorder)
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- - Áttavitinn, Aðsóknarpersónuleikaröskun
- Áttavitinn, Andfélagsleg persónuleikaröskun [óvirkur tengill]
- Áttavitinn, narsissismi
- Áttavitinn, geðhrifa persónuleikaröskun
- Doktor.is, hliðarpersónuleiki
- Hun.is - Hvað er persónuleikaröskun?
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Gylfi Ásmundsson Persónuleikaröskun Geymt 16 desember 2007 í Wayback Machine Lýðheilsustöð.
- ↑ Jakob Smári. „Hvað er persónuleikaröskun?“. Vísindavefurinn 23.3.2000. (Skoðað 22.2.2011).
- ↑ Tíðni persónuleikaraskana á Stór-Reykjavíkursvæðinu Læknablaðið