Lýsing
Metropolitan Hótel er staðsett við hljóðláta hliðargötu í hjarta miðbæjarins. Hótelið er nýbúið að gangast undir endurbætur árið 2004 og er innviði hótelsins allt endurnýjað. Við erum stolt af því að geta veitt gæða þjónustu á sanngjörnu verði. Herbergin eru 31 og öll með baði, sjónvarpi, útvarpi og kæliskáp. Morgunmatur er innifalinn í verði á herbergjum og er hótelið með þráðlausa internettengingu alls staðar á hótelinu. Eitt besta þriggja stjörnu hótelið í miðbænum í dag. Verið ávallt velkomin.
Setja inn umsögn